Lýsing
Til að ná þessu markmiði var hlaupið endurhannað, gert léttara án þess að hafa áhrif á getu byssunar, sem gerir N2 að einum af þægilegustu íþróttaskotbyssunum til að meðhöndla á markaðnum í dag. Hugmyndafræðin á bak við hönnun Elos N2 er að byssan passi kvennkyns notandum, en ekki eru allar konur eins. Til að mæta þörfum flestra kvenna var Elos N2 hönnuð með það í huga að sem flestar konur geti notað byssuna. Til að ná enn betur utan um flóru kvenna sem getur notað byssuna var sett inn “Micro-Metric 3D™” stillanlegt skefti, stillanlegur gikkur og útskiptanlegur skeftispúði sem gerir Syren Elos N2 Sporting að frábæru vali.
Það fyrsta sem tekið er eftir þegar folk sér Elos N2 eru hrein lögun og undirstikaður glæsileiki. Gikk- og skothús eru með mjúka satin áferð til að draga úr glampa, skreytt með fíngerðum útskurði og heiti byssunar í hvítum og fjólubláum litum. Skeftin eru smíðuð úr tyrkneskri Valhnetu sem hefur verið meðhöndluð samkvæmt Triwood™ aðferðarfræðinni, sem eykur vatnsheldni viðarins. Engar málamiðlanir voru gerðar þegar kemur að frammistöðu vopnsins. Með Elos N2 koma 5 Exis HP™ þrengingar ofan á Tribore HP™ hlaupin til að ná því besta frá byssunni.
Frekari upplýsingar má fynna í hér.