Sleppa og fara að efni Skip to footer

DTS, Dynamic Tuning System.

„DTS“ verkefnið er niðurstaða umtalsverðar fjárfestingar í verkfræði-, hönnunar- og þróunarvinnu. Í gegnum „DTS“ verkefnið hafa verið þróaðar tæknilega háþróaðar lausnir til að mæta kröfum notenda sem setja markið hátt og vilja sérsniðnar lausnir. Notast er við tækni og nýsköpun til að auka þjónustustig við viðskiptavini án þess að vanrækja fallega hönnun og glæsileika, þetta er einn af styrkleikum Sæsar Guerini.

„DTS“ verkefnið nær yfir margvíslegar rannsóknir:

  • Stillanlegir miðunarlistar á íþróttahaglabyssur.
  • Stillanlegur skeftiskambur á íþróttahaglabyssur sem hægt er að stilla í nokkrar áttir, ekki bara upp og niður Annað hvort úr við eða mjúkum „No impact“ gúmmí. 
  • „DTS Kinetic Balancer” þyngdar jöfnunarkerfi staðsett ýmist í skefti eða á hlaupi. Bíður upp á nákvæmari ballanseringu og dregur úr bakslagi.

“AT” stillanlegir miðunarlistar

Þessir miðunarlistar voru sérstaklega þróaðir og hannaðir  fyrir 12 ga American Trap og Double Trap haglabyssur.  Listarnir eru fáanlegir á undir/yfir útgáfur ásamt einhleypu útgáfum hvort sem hlaupið er í efra hlaup “Top Single” eða neðra hlaup “Bottom Single” útfærslum. Miðunarlistarnir eru 25mm háir og hafa 100% ákomu hagla (point of impact)

SUMMIT TRAP AT 2017
SUMMIT TRAP A T U_S- B 2017

“IMPACT” stillanlegir miðunarlistar

Eitt af metnaðarfyllri verkefnunum var að hanna nýja nálgun á milli notanda og skotvopns. Hugsunin var að bjóða trap og sporting skotíþróttafólki, sem alment halda í sýna nálgun á skotfimi/skothefð og vilja hellst engu breyta, þann möguleika að aðlaga haglabyssur sínar að þeirra skotstíl að fullu. Þessir miðunarlistar eru þróaðir og hannaðir til að passa trap- og sporting haglabyssum hvort sem notað er 12 Ga eða 20 Ga. Lægsta hæð listana, 17mm, veitir notanda sömu tilfynningu eins og um hefbundin miðunarlista væri að ræða.

SUMMIT BLACK Impact SX

Með öðrum orðum er engin vafi á að notkun byssu sem hefur “Impact” miðunarlista mun gefa mikið forskot þegar kemur að skotstíl þar sem “hefbundnar” haglabyssur hafa verið notaðar hingað til. Kerfið bíður upp á 80% stjórn ákomu hagla.

“EVOLUTION” stillanlegir miðunarlistar

Enn frekar og ekki síður mikilvægri útfærslu hefur verið bætt við “DTS” stillanlegu miðunarlista línuna, módelið Evolution.

Tæknilegu eiginleikarnir og stillanleikinn líkist mjög miðunarlistanum “Impact”. Hinsvegar er þessi nýji listi aðeins 14mm hár og kemur með víprings demprunarkerfi staðsett miðja vegu á hlaupinu.

Stilling ákomu hagla hefur verið minnkuð niður í 50/50% – 70/30% sem bíður upp á að hæðsti puntur landsins sé lækkaður. “Evolution” landið hefur lægstu top hæð  fyrir stillanleg lönd á markaðnum í dag.

Krafan um haglabyssur fyrir íþróttaskotfimi með stillanlegu landi hefur verið að aukast meðal skotíþróttaiðkenda í heiminum en það eru ekki allir sem þurfa svona mikin stillanleika líkt og boðið er upp á í mörgum Ceasar Guerini haglabyssum.

Nýja “Ascent” línan er svarið fyrir þá sem vilja hógværari nálgun, en vilja hærra, mjókkandi land og DTS Monte Carlo stillanlegt skefti. Hlaup og skefti hafa verið útbúin til að ná eins góðum ballans á milli handa fyrir betri meðhöndlun.

“DTS” skeftið

Stillanlegi kamburinn á DTS bíður upp á 7 micrometrik stillingar. Kamburinn er úr við að staðaldri en boðið er upp á “No Impact” kamb úr þar til gerðu gúmmí fyrir þá sem vilja.

Báðar útfærslur eru útskiptanlegar. Við hönnun “DTS” skeftisins er gert ráð fyrir “DTS Kinnetic Balancer” inn í skeftinu fyrir þá sem vilja frekari höggdemprun og jafnvægisstillingu. Vegna þryggja lóða sem eru staðsett milli tveggja gorma getur notanda byssunar aðlagað þyndar dreifinguna að sínum þörfum, ásamt að fá minna bakslag og betri stjórn á meðan verið er að æfa. Til viðbótar við “DTS Kinnetic Balancer” er hægt að fá “DTS Barrel balancer” þyngdardreifingarlóð á hlaupin.