Markmið Gunni Sig er að bjóða eingöngu upp á vörur sem endast, gera það sem ætlast er til af þeim og standast tímans tönn.
Gunni Sig ehf_Veiðibúðin.is er lítið fjölskyldufyrirtæki í eigu Gunnars Inga Gunnarssonar. Gunni Sig ehf hefur það að markmiði að bjóða upp á vandaðar og áræðanlegar vörur hvort sem um ræðir skotvopn eða fylgivörur.
Gunni Sig ehf hefur haglabyssur frá tveimur ítölskum skotvopnaframleiðendum, Cæsar Guerini og Fabarm þar sem gæði, fágun og ending er í hávegi hafður. Saman framleiða, Cæsar Guerini og Fabarm, haglabyssulínu hönnuð af konum fyrir konur, er ber nafnið SYREN. Gunni Sig hefur án nokkurns vafa breiðustu og víðtækustu línuna af haglabyssum hannaðar sérstaklega fyrir konur af öllum innflytjendum á Íslandi. Gríðaleg breidd er að fynna í vöruúrvaki þessa tveggja framleiðenda og er nokkup öruggt að allir fynni eitthvað við sitt hæfi.
Gunni Sig er mun meira en bara haglabyssur þar sem boðið er upp á vandaðar vörur frá framleiðendum á við Ulfhednar í Noregi, Unisport Ítalíu, ADV Bandaríkin oflr.
Markmið Gunni Sig er að bjóða eingöngu upp á vörur sem endast, gera það sem ætlast er til af þeim og standast tímans tönn.
Vörusala mun til að byrja með fara alfarið í gegnum heimasíðu Gunna Sig ehf, www.veidibudin.is, til að byrja með en með tíð og tíma munu vörur félagsins færast inn í verslun/verslanir þar sem hægt verður að sjá og þreifa á vörunum. Þar sem verslunin er ný á nálinni mun vöruflóra og þjónusta félagsins taka miklum breytingum á næstu árum og því gott að fylgjast vel með.
Stefnan er að bjóða upp á fleirra heldur en skotvopn og fylgihluti, má meðal annars nefna fræðslu og afþreyingu af ýmsu tagi hvort sem verður í gegnum veraldarvefin eða á annan máta.
Fagleg og persónuleg þjónusta verður merki félagsins og allt gert til að gera upplifun viðskiptavina góða og þægilega með því að aðstoða og leiðbeina viðskiptavinum á sem bestan máta.
Best þekktur innan skotíþrótta- og veiðisamfélagsina sem Gunni Sig hjá SR, ISSF skotfimileiðbeinandi og dómari.
Gunnar Sigurðsson er faðir eiganda og var best þekktur innan skotíþrótta- og veiðisamfélagsina sem Gunni Sig hjá SR, ISSF skotfimileiðbeinandi og dómari. Gunni Sig eyddi lunga af sinni æfi og hafði til langs tíma lagt mikið upp úr að deila þekkingu sinni á skotfimi til annara og var markvist að reyna ná konum inn í sportið sem honum tókst upp að ákveðnu marki. Þar sem faðir minn Gunnar Sigurðsson (Gunni Sig) er ekki lengur með okkur hef ég, sonur Gunna Sig, ákveðið að heiðra vinnu föður míns. Ég ætla að halda áfram með hans vinnu, taka verkefnið skrefinu lengra og ætla að gera tilraun til að halda verki föður míns áfram með því að opna þessa vefverslun með skotvopnum hönnuðum af konum fyrir konur frá ítölsku framleiðundunum Caesar Guerini og Fabarm. Líkt og áður hefur verið sagt verða “hefbundin” skotvopn einnig í boði.

